Gísli G. Gunnarsson er fæddur á Seltjarnarnesi 2. júní 1949. Ólst upp í smáíbúðarhverfinu í Reykjavík og gekk í Breiðagerðis- og Réttarholtsskóla, þaðan lá leiðin í Verknámsskólann í Brautarholti auk þess að starfa við byggingarvinnu á sumrin. Gísli nam húsasmíði hjá Einari Ágústssyni byggingarmeistara (Öndvegi hf) og lauk sveinsprófi 1969.
Eftir nokkra ára störf við húsasmíði hóf Gísli nám í byggingarfræði við Byggeteknisk Höjeskole í Kaupmannahöfn og lauk þaðan prófi árið 1977.
Árið 1979 tók Gísli við rekstri Teiknistofunnar Kvarða og starfrækir hana enn. Á árunum 1982 til 1987 gaf hann út ársritið Húsbyggjandann. Árið 1989 stofnaði hann ásamt fleirrum Stúdíó Hús sem m.a. hafði að markmiði hönnun í tölvutæku formi.
Þá nam Gísli kennslufræði við Háskóla Ísland og útskrifaðist með diplómu í kennslufræðum starfsmennta árið 2012.
Eiginkona Gísla er Unnur Birna Magnúsdóttir snyrtifræðingur og eiga þau þrjú börn: Magnús Geir, Valdísi Ösp og Gísla Rúnar.
Hefur síðustu ár starfað nokkuð í félagsmálum. Verið félagi í Kiwanisklúbbnum Hraunborg Hafnarfirði í 16 ár, þar af 2 ár sem forseti klúbbsins og eitt ár sem svæðisstjóri Ægissvæðis. Þá hefur Gísli verið í framkvæmdaráði skólakórs Flensborgarskóla síðustu 4 ár og setið í stjórn Landsmálafélagsins Fram í nokkur ár.