Sumar- og frístundahúsá einni hæð.
8123
8099 |
8118 |
8072 |
8113 |
8067 |
8084B |
8103b 8103
8095b 8124
Stórt fjölskyldu frístunda/heilsárs hús, þar sem leitað er eftir að byggja húsið til að mynda gott skjóla á verönd þar sem einnig er fallegt útsýni út að á og fallegum gróðri. Hjónaherbergið með sér skála. Stór geymsla/þvottur inn af anddyri.
|
136,4m2 sumar/heilsárs hús, þar sem magnað útsýni nýtur sín vel úr helstu vistaverum þ.e., eldhús/borðstofa, stofa og 2 svefnherbergi og rúmgott andyri. Í húsinu eru 2 baðherbergi annað fyrir svefnálmu og hitt við alrými. Þvottaherbergi og geymsla.
Sjá einnig myndir af húsinu, undir verk í vinnslu-húsinu í byggingu. |
8079, 8079b, 8080
Þrjár stærðir af húsi, 8080 36m2, 8079 50m2 og 8079b 62,9m2 sumarbústaður.
Klæðning útveggja eru báraðar álplötur og bandsagaður panell á völdum stöðum. 2 svefnherbergi, bað og alrými.
Klæðning útveggja eru báraðar álplötur og bandsagaður panell á völdum stöðum. 2 svefnherbergi, bað og alrými.
8087
Frístundahús þar sem megin áhersla við hönnun var að geta notið stórkostlegs útsýnis úr alrými til suðurs og vesturs og að þar væri yfirbyggð verönd. Húsið samanstendur af tveimur stórum svefnherbergjum, nema húsagerð 8087d sem er með 3 svefnherbergjum. Gott bað með hurð út í setlaug. Alrými með hurð út á verönd. Einnig er hægt að hafa hurð út úr svefnherbergi.
Teikningar af húsinu eru til í 5 mismunandi stærðum 8087 78,5m2, 8087b 65,3m2, 8087c 65,9m2, 8087d 115,7m2, 8087e 101,6m2.
Teikningar af húsinu eru til í 5 mismunandi stærðum 8087 78,5m2, 8087b 65,3m2, 8087c 65,9m2, 8087d 115,7m2, 8087e 101,6m2.
8104
Frístundahús 104,0m2 + sérgeymsla fyrir golfvagn / fjórhjól 11,5m2. Svefnherbergi (3) eru í sér álmu eins skáli og eldhús, á milli þeirra er tengibygging með stóru baðherbergi þar sem útgengt er í setlaug, ásamt geymslu og anddyri. Við alrými er yfirbyggð verönd með hurðar á tvo vegu beint út.
Sjá einnig myndir af húsinu, undir verk í vinnslu-húsinu í byggingu.
Sjá einnig myndir af húsinu, undir verk í vinnslu-húsinu í byggingu.
8083b
Grunnflötur hússins er 83,9 m2. 2 ágæt svefnherbergi 8,2m2 hvort um sig. Baðherbergi 4,0m2 með hurð út í heitan pott og alrými 27,7m2 með hurð út á yfirbyggðan pall. Geymsla og þvottur í viðtengdri byggingu. Svipað hús til í nokkrum útgáfum.
8021
Sumarhús langt inn í skógi. Húsið samanstendur af 3 svefnherbergjum og baði, 31m2 alrými með tvöfaldri hurð út á yfirbyggða verönd. Þakið er valmaþak með burðarvikri sem er sýnilegt að innan. Grunnflötur bústaðs brúttó 86,0 m2
8036
159m2 hús með bílgeymslu. Húsið samanstendur af 2 svefnhefbergum og baðherbergi með hurð út í setlaug. Alrými er 52m2 með arin og tvöfaldri hurð úr eldhúsi út á yfirbyggða verönd. Einnig er hurð úr arinstofu út á verönd.
8041
Nokkuð hefðbundið sumarhús með gestahúsi. Sumarhúsið er 74,6m2 og gestahúsið 20m2. Sumarhúsið er með 3 svefnherbergjum og baði með hurð út í setlaug. Alrými með hurð út á verönd er 21.3m2.